HEIÐURSVERÐLAUN Leiklistarsambands Íslands árið 2010 hlýtur einn ástsælasti leikari þjóðarinnar, Árni Tryggvason.
Stóri salur Þjóðleikhússins var þétt setinn af samstarfsfélögum, ættingjum og vinum sem heiðruðu Árna með hlýju lófataki og stóðu upp til að syngja með honum eitt hans helsta einkennislag, Dvel ég í Draumahöll úr sýningunni Dýrunum í Hálsaskógi. En líkt og mörgum er enn í fersku minni, lék Árni skógarmúsina Lilla klifurmús í sýningunni fyrir "nokkrum" árum síðan.