ALÞJÓÐA leikhússmálastofnunin ITI fékk leikhússlistamanninn Robert Lepage til að semja ávarp í tilefni af Alþjóða leiklistardeginum 2008. Ávarpið er flutt í leikhúsum víða um heim og fer hér á eftir: "Það eru til margar kenningar um uppruna leikhússins, sú sem hefur ætíð heillað mig mest er dæmisaga. Nótt eina, í upphafi daga, var hópur fólks saman kominn í hellisskúta, þar sem fólk yljaði sér við eld og sagði hvert öðru sögur. Þá var það að einhverjum datt í hug að standa á fætur og nota skugga sinn til þess að myndskreyta sögu sína.
Með hjálp birtunnar frá eldinum, lét hann yfirnáttúrlegar persónur birtast á hellisveggjunum. Hinir voru yfir sig hrifnir, þegar birtust þeim hver á eftir öðrum; sá sterki og hinn veiki, kúgarinn og hinn kúgaði, Guð og dauðlegir menn.
Á okkar tímum hafa ljóskastarar komið í staðinn fyrir bálköst og sviðsmyndir í staðinn fyrir hellisveggi. Án þess ég vilji hnýta í hreinstefnumenn, minnir þessi saga okkur á að tæknin hefur frá fyrstu tíð verið ómissandi þáttur leikhússins. Tæknina má ekki sjá sem ógn, heldur einmitt tækifæri til þess að sameina krafta.
Framtíð leiklistarinnar er undir því komin að hún endurnýi sig stöðugt og tileinki sér ný verkfæri og ný tungumál. Hvernig á leikhúsið að geta haldið áfram að vitna um átakalínur samtímans og vera merkisberi mannlegrar samkenndar, ef það tileinkar sér ekki víðsýni? Hvernig getur leikhúsið státað af því að bjóða upp á lausnir við óumburðarlyndi, útilokun og kynþáttahyggju, nema það rugli sjálft reytum við nýja mótleikara?
Til þess að geta sýnt heiminn í allri sinni flóknu dýrð verður listamaðurinn að bjóða upp á ný form og nýjar hugmyndir og treysta dómgreind áhorfandans, sem kann að lesa skuggamyndir mannkyns í hinum endalausa leik ljóss og skugga.
Sá sem leikur sér að eldi getur brennst. En hann getur líka heillast og uppljómast."
Robert Lepage
Um höfundinn
Robert Lepage er kanadískur galdramaður í leikhúsi og undrabarn. Hann er jafnvígur sem leikstjóri í leikhúsi, leikari, sviðsmyndahönnuður og kvikmyndaleikstjóri. Frumleiki hans og sköpun hefur borið hróður hans víða um heim og er hann einn virtasti leikhússlistamaður heims um flessar mundir. Robert Lepage fæddist í Quebec 1957 og eftir að hann gekk til liðs við leikhúsið hefur hann verið jafnvígur á að finna nýjar leiðir til að túlka samtímann sem og að brjóta klassísk verk leikbókmenntanna til mergjar og færa fram kjarna þeirra á nýstárlegan hátt.
Íslensk þýðing
Guðrún Vilmundardóttir
< Fyrri | Næsta > |
---|